Indian Mango
Íslenska English

  George Holmes

Stofnandi og matreiðslumeistari Indian Mangó er George Holmes.  George er ættaður frá Goa sem er á  suð-vestur Indlandi. Hann bjó um árabil á norður Indlandi og við rætur Himalaya fjalla.  Á ferðum sínum um Indland kynntist hann fjölbreyttum bragðtegundum og hinum ýmsu réttum.  Hann hefur alla tíð haft einstakan áhuga á matargerð og byrjaði ungur að aðstoða móður sína við eldamensku. Hann fylgdist með henni af áhuga.  George stundaði matreiðslunám á Indlandi og hlaut þjálfun sína þar.  Hann hefur unnið á hinum ýmsu veitingahúsum um heim allan, þar á meðal fimm stjörnu lúxushótelinu Four Season á Nýja Sjálandi. 

 

"Ég hef eldað fyrir heimsfrægar stjörnur og ég hef eldað fyrir venjulegt fólk svona eins og mig" segir George, hann hefur fengið góða umfjöllun í fjölmiðlum í og utan Evrópu.

 

George eldar af ástríðu og hefur unun af því að gleðja gesti sína.  Hann hefur búið á Íslandi frá árinu 2001 og hefur verið íslenskur ríkisborgari frá árinu 2008.

Indverskur ehf. Norðurtúni 14, 101 Reykjavík sími 551-7722, Kennitala 450405-0430
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is