Indian Mango
Íslenska English

Lúða að hætti Goa

1 kg. lúða, skorin í fimm bita

Hálf kókoshneta, röspuð

Stórt búnt ferskt kóriander

Eitt hvítlauksrif

1 cm. fersk engiferrót

Tamrind á stærð við eina valhnetu

2 grænir chilly

sykur og salt eftir smekk

 

Aðferð:

Blandið öllu saman í blandara nema fiskinum og búið til mauk, fyllið fiskinn með maukinu.  Penslið fiskinn með olíu og pönnusteikið eða bakið í ofni við 150°C hita í 17 mínútur, eða þar til hann er bakaður.  Berið fram með hrísgrjónum og grænmeti.

Indverskur ehf. Norðurtúni 14, 101 Reykjavík sími 551-7722, Kennitala 450405-0430
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is