Mahipal Singh
Mahipal Singh er fæddur í Uttaranchal, Uttar Pradesh á norður Indlandi. Hann hefur hlotið þjálfun á lúxus hóteli og er hans sérgrein tandoori eldun. Það er mikill fengur fyrir Indian Mangó að fá Mahipal í eldhúsið en hann hefur búið á Íslandi í sex ár. Hann kom til landsins til að starfa á indverskum veitingastað í Reykjavík og hefur starfað þar frá því hann kom og þar til hann gekk til liðs við Indian Mangó.
|